27. mars 2017
Kæru laganemar,
Framhaldsaðalfundur Orators verður haldinn mánudaginn 3. apríl n.k. kl. 16:45. Hengdar hafa verið upp auglýsingar í Lögbergi.
Staðsetning verður tilkynnt á morgun, þriðjudaginn þann 28. mars. Boðið verður upp á fljótandi veigar á fundinum.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi, skv. 12. gr. laga Orators:
Liðir 1-3 og 5-8 hafa verið afgreiddir.
4. Lagabreytingar
9. Kosning ferðamálaráðs.
10. Kosning fulltrúa og varafulltrúa á deildarfundi lagadeildar, skulu þeir kosnir til tveggja ára. Fjöldi deildarfulltrúa skal fara eftir reglum Háskóla Íslands. Varaformaður félagsins er sjálfkjörinn deildarfundarfulltrúi til eins árs.
Kosning varafulltrúa í námsnefnd sbr. 11. lið. 12. gr.
12. Kosning nefndarmanna í ritnefnd Úlfljóts. Þeir skulu vera að hámarki 5.
13. Kosning ritstjóra GRÍMS GEITSKÓS.
14. Kosning ritstjóra Margmiðlunarnefndar.
15. Kjör tveggja skoðunarmanna. Hvorki mega þeir eiga sæti né hafa átt sæti í stjórn Orators eða vera, eða hafa verið, framkvæmdastjórar Úlfljóts. Skoðunarmenn skulu ráðfæra sig við gjaldkera stjórnar fyrri árs.
16. Kosning þriggja laganema í Lagaráð Orators, sbr. 15. gr.
17. Önnur mál.
Einnig skal velja 6 fulltrúa í nefnd íþróttajöfra, sbr. 53. gr.:
53. gr. Stjórn Orators skal skipa íþróttajöfra sem bera ábyrgð á íþróttalífi laganema. Þeir skulu skipaðir eftir aðalfund ár hvert og vera að hámarki 6 talsins.
Bestu kveðjur,
stjórn Orators