Nemendur » Upplýsingar fyrir nýnema
Laganemar - Velkomin í Orator!
Meðlimir í stjórn Orator munu vera í Stakkahlíð næstu daga til að kynna fyrir ykkur starfsemi félagsins. Hvetjum við alla til að gerast félagsmenn í Orator til að geta litið upp úr bókunum stöku sinnum og tekið þátt í kraftmiklu starfi Orator. Ekki hika við að hafa samband á orator@hi.is ef einhverjar spurningar vakna.
Félagslíf
Nýnemadagar
Á nýnemadeginum eru nýnemar boðnir velkomnir í háskólann og lagadeildina með stuttri kynningu um námið og lífið í háskólanum almennt. Eftir það slær stjórn Orator upp grillveislu og pylsar liðið upp áður en Úlfljótur býður þeim upp á dýrindissúkkulaðitertu sem skoluð er niður með kókómjólk á meðan eldri nemar fræða yngri um námið og félagslífið. Nýnemar eru einnig hvattir til að taka þátt í dagskrá háskólans sem auglýst er á vef stúdentaráðs.
http://student.is/nynemar/dagskra_nynemadaga
Þingvallaferð
Hin árlega Þingvallaferð, eða nýnemaferð, er alltaf haldin fyrsta eða annan föstudag starfsvetrarins. Þar myndar margur laganemi sín fyrstu tengsl og fyrstu minningar um deildina, ásamt því að gleyma öðrum. Lagt er af stað frá Lögbergi eftir hádegi með viðkomu í Heiðrúnu, þar sem fólk birgir sig upp. Á leiðinni er boðið upp á allt mögulegt; fróðleiksmola, söng, bakkus og áfram mætti lengi telja. Þegar komið er á staðinn eru laganemar fræddir um allt sem til er skráð, og ekki til skráð, um Þingvelli. Óhætt er að segja að farnar eru óhefðbundnar leiðir til að stimpla inn réttarsögu í nýnemana. Að lokum er brunað með liðið í partý þar sem dansinn dunar og gleðin ríkir áður en haldið er niður í bæ rétt um miðnætti og þeir sem enn eru á fótum halda gleðinni þar áfram.
Þingvallaferð verður farin þann 11. september næstkomandi.
Kokteilar
Orator heldur uppi einu öflugasta félagslífi háskólans. Þar spila kokteilar, sem haldnir er hvern föstudag, stóran sess. Á hverjum föstudegi er laganemum boðið í heimsókn á lögmannstofur/fyrirtæki/ríkisstofnanir þar sem vinna þeirra er kynnt á meðan laganemar hrista sig saman undir góðu yfirlæti. Eftir það er svo haldið niður í bæ á þann skemmtistað sem Orator hefur samning við hverju sinni og bíða þeirra þar margvísleg tilboð á barnum og er gleðinni, og oftar en ekki, danspúkanum gefinn lausur taumurinn. Laganemar mæta alltaf virðuglega klæddir í kokteila og á réttum tíma.
Árshátíð
Árshátíð Orator er haldin 16. febrúar ár hvert, stofnunardegi Hæstaréttar. Er þetta ein glæsilegasta árshátíð innan háskólans og hápunktur félagslífsins, punkturinn yfir i-ið. Meðan salurinn fyllist af smóking-og galaklæddu fólki er viðamikil skemmtidagskrá með öllu mögulegu. Þar bjóðum við m.a. velkominn heiðursgest Orator sem er yfirleitt þjóðþekktur einstaklingur, norrænu gestina okkar, sem eru yfirleitt 25-30 og rifjaðir eru upp nokkrir minnistæðir einstaklingar sem nýlega hafa yfirgefið deildina. Þetta er klárlega ógleymanlegt kvöld sem enginn getur látið framhjá sér fara!
Alþjóðlegt samstarf
Orator hefur í gangi öflugt alþjóðlegt samstarf. Orator tekur þátt í svokölluðu Nordiska sekretariatet sem hefur rætur sínar að rekja alveg til 19. aldar. Í þessu samstarfi eru svo haldnar norrænar vikur. Hvert skólafélag heldur sína eigin viku sem öllum er boðið á. Allar eiga þær það sameiginlegt að enda á árshátíð viðkomandi skólafélags sem gerir það að verkum að okkar er ávallt haldin í kringum 16. feb. Norrænar vikur eru mikilvægar í umhverfi laganema þar sem þær snúast mikið um að mynda vinabönd og tengslanet á Norðurlöndunum sem er, jú, mikilvægt að hafa þegar við förum út á vinnumarkaðinn. Orator tekur einnig þátt í samstarfsverkefni með Ohio Northern háskóla í USA. Þar sendir hann út árlega hóp á sínum vegum til að kynnast lífi og starfi bandarískra laganema og tökum við svo móti þeim og gerum slíkt hið sama.
Grímur Geitskór
Grímur Geitskór er tímarit laganema. ,,Grímurinn" er gefinn út nokkrum sinnum á ári og safnast þar saman allt það áhugaverðasta sem gerst hefur í félagslífi laganema hverju sinni og segir Grímurinn frá því á sinn áhugaverða hátt.
Fræðastarf
Málfundir eru haldnir reglulega bæði á vegum lagadeildar og Orator. Þar er oftar en ekki tekið á þeim álitamálum sem hvað mest eru í umræðunni á hverjum tíma.
Orator kemur til með að halda úti öflugu fræðastarfi á skólaárinu og hver veit nema einhverjar nýjungar líti dagsins ljós.
Praktískt
Stjórn Orator
Stjórn Orator samanstendur af formanni, varaformanni, gjaldkera, ritstjóra Úlfljóts, alþjóðaritara, funda-og menningamálastjóra og skemmtanastjóra. Skólaárið 2009-2010 skipa eftirfarandi embættin:
Formaður: Rútur Örn Birgisson
S: 869-1031. Netfang: rob3 (hjá) hi.is
Varaformaður: Hrefna Dögg Gunnarsdóttir
S: 8689109. Netfang: hdg1 (hjá) hi.is
Ritstjóri Úlfljóts: Benedikt Hallgrímsson
S: 822-0521. Netfang: beh12 (hjá) hi.is
Alþjóðaritari: Valgerður Guðmundsdóttir
S: 866-7480. Netfang: vag13 (hjá) hi.is
Funda- og menningamálastjóri: Hjalti Geir Erlendsson
S: 692-1284. Netfang: hge3 (hjá) hi.is
Skemmtanastjóri: Kristín Lára Helgadóttir
S: 669-9687. Netfang: klh4 (hjá) hi.is
Gjaldkeri: Vilhjálmur Þór Svansson
S: 691-3644. Netfang: vths1 (hjá) hi.is
Skrifstofa Orator
Skrifstofa Orator er staðsett á 2. hæð á Lögbergi og hefur stjórn Orator þar aðstöðu sína. Erum við yfirleitt við þar ef spurningar vakna eða eitthvað kemur upp á og hvetjum við ykkur til að banka þar upp á.
Lesstofa
Lesstofa laganema er staðsett á 2. hæð á Lögbergi. Er hún opin öllum laganemum, sama á hvaða ári þeir eru, þó hafa eldri nemar forgang við úthlutun borða. Öllum er samt heimilt að setjast við borð ef eigandinn situr ekki við það. Leggjum við áherslu á það að allir laganemar eru velkomnir á lesstofuna, sama á hvaða ári þeir eru.
Bókasafn
Bókasafn lagadeildar er staðsett á 3. hæð á Lögbergi. Það er stærsta sérhæfða bókasafn á landinu. Ekki er hægt að fá þar bækur lánaðar nema til notkunar í lokaritgerðum. Þó er möguleiki á að fá lánað til ljósritunar.
Skrifstofur kennara
Skrifstofur kennara eru staðsettar bæði á 4. hæð á Lögbergi og í Gimli, Háskólatorgi. Fer það eftir viðkomandi kennara hvar hann er staðsettur.
Aukakennsla
Eldri nemendur taka að sér aukakennslu í 1. árs fögum og er hægt að nálgast upplýsingar á vef náms- og starfsráðgjafar háskólans.
http://www2.hi.is/page/namsradgjof_aukakennsla
Nýnemar eru einnig hvattir til að taka virkan þátt í umræðutímum í fögum sínum en þar gefst bæði kostur á því að ræða námið í minni hópum sem og spyrja eldri nemendur sem sjá um fögin að því helsta sem hvílir á nemendum vegna námsins.
Vinsælustu síðurnar