Lög Orator
Lög Orators
I. HEITI, HEIMILI OG HLUTVERK
1. gr.
Félagið heitir ORATOR, félag laganema. Heimili þess er Lögberg, Háskóla Íslands. Grágás er merki félagsins.
2. gr.
Hlutverk félagsins er:
a. Að auka kynni laganema og fylkja þeim um hagsmunamál þeirra og stofna til kynna við lögfræðinga.
b. Að vera í fyrirsvari fyrir íslenska laganema gagnvart háskólayfirvöldum, opinberum aðilum og öðrum innlendum og erlendum aðilum.
c. Að þjálfa félaga sína til lögfræðilegra viðfangsefna, rökfimi, mælskulist og öðru því sem prýða má góðan lögfræðing.
d. Að annast útgáfustarfsemi um lögfræði, svo og um hagsmuna- og áhugamál laganema.
e. Að halda sambandi og samvinnu við erlenda stúdenta, einkum á Norðurlöndunum.
3. gr.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því m.a.:
a. Að efna til funda um lögfræðileg og félagsleg málefni.
b. Að efna til málflutningsæfinga og æfinga um lögfræðileg efni.
c. Að halda lögfræðilega ræðukeppni, ORATOR/ORATORUM, í nóvembermánuði ár hvert.
d. Að halda „seminar“ um lögfræðileg málefni.
e. Að efla persónuleg kynni laganema með því að efna til málfagnaða og halda hátíðlegan dag félagsins, 16. febrúar, með fyrirlestrahaldi, málflutningi eða málþingi og veisluhöldum.
f. Að gangast fyrir a.m.k. einum vísindaleiðangri árlega.
g. Að gangast fyrir stúdentaskiptum og taka reglulega þátt í mótun norrænna lagastúdenta og ungra lögfræðinga.
h. Að hafa opið félagsheimili í herbergi félagsins í Lögbergi.
i. Að vera vakandi um öll þau mál sem snerta laganema og lögfræðinga í landinu.
j. Að hafa starfandi hagsmunaráð.
k. Að hafa starfandi nefnd til að sjá um samskipti ORATORS við erlenda laganema og félög þeirra. Alþjóðaritari félagsins veitir nefndinni forstöðu, en stjórnin skipar aðra nefndarmenn úr röðum félagsins.
l. Að gefa út Úlfljót, tímarit laganema.
m. Standa fyrir Málflutningskeppni Orators eigi sjaldnar en annað hvert ár.
n. Að starfrækja endurgjaldslausa lögfræðiaðstoð fyrir almenning.
II. FÉLAGSMENN
4. gr.
Allir stúdentar innritaðir í lagadeild Háskóla Íslands geta orðið félagar í ORATOR.
5. gr.
Allir prófessorar og kennarar lagadeildar Háskóla Íslands hafa rétt til setu á fundum félagsins og njóta þar fullkomins mál- og tillögufrelsis.
6. gr.
Félagið getur kosið heiðursfélaga úr hópi lögfræðinga, innlendra sem erlendra skv. tillögu frá stjórn félagsins og telst það æðsta viðurkenning félagsins. Tillaga um slíkt kjör skal borin fram á fundi í félaginu og telst hún samþykkt ef ¾ hlutar fundarmanna greiða henni atkvæði. Skal stjórnin halda skrá yfir heiðursfélaga. Stjórn félagsins er heimilt að sæma þá aðila, innlenda sem erlenda, sem sýnt hafa sérstakan áhuga á hagsmunamálum laganema, barmmerki félagsins úr gulli. Félagsmönnum, sem ljúka embættisprófi eða meistaraprófi í lögfræði, skal afhent heiðursskjal frá félaginu á hátíðisdegi félagsins, enda votti þeir GRÁGÁS virðingu sína.
7. gr.
Stjórn ORATORS skal bjóða laganemum við Háskóla Íslands barmmerki félagsins til kaups.
8. gr.
Ekki er heimilt að víkja félagsmanni úr félaginu, sbr. þó 4. gr. Réttindanautn í félaginu er þó bundin því skilyrði að félagar hafi greitt árstillag skv. 9. gr. Heimilt er að víkja félagsmanni af fundi í félaginu skv. 29. gr. fundarskapa ORATORS.
9. gr.
Stjórn ORATORS ákveður árstillag félagsmanna fyrir upphaf hvers kennsluárs. Skal innheimta árstillagsins hefjast að hausti. Stjórn félagsins lætur útbúa félagsskírteini, sem afhenda skal hverjum félagsmanni, er hann hefur greitt árstillag sitt. Stjórninni er heimilt að afla styrktarfélaga úr hópi lögfræðinga eftir reglum sem hún setur.
10. gr.
Reikningsár félagsins er á milli aðalfunda. Reikningum félagsins skal lokað fjórum sólarhringum fyrir aðalfund og skilað til endurskoðenda félagsins tveimur sólarhringum fyrir aðalfund.
III. AÐALFUNDUR
11. gr.
Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfund skal halda eigi síðar en í 4. viku marsmánaðar ár hvert. Framhaldsaðalfund skal halda eigi síðar en 4 vikum eftir að aðalfundur hefur farið fram. Til aðalfundar og framhaldsaðalfundar skal boða með áberandi auglýsingu í anddyri Lögbergs, á auglýsingatöflum lagadeildar og annars staðar sem lagakennsla fer fram, með viku fyrirvara hið skemmsta. Tillögur til lagabreytinga skal kynna á sama vettvangi eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund, sbr. 2. málsl. 13. gr. Aðeins félagsmenn Orators hafa atkvæðisrétt á aðalfundi. Afl atkvæða ræður úrslitum mála á aðalfundi, nema annars sé getið í lögum þessum.
Kosningastjóri skal skipaður af stjórn ORATORS eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund. Að tillögu kosningastjóra skipar stjórn ORATORS tvo aðila, er ásamt kosningastjóra, mynda kjörstjórn ORATORS.
Kosningastjóri skal annast framkvæmd og undirbúning stjórnarkjörs, m.a. með framboðsfundi. Skal hann hafa lokið BA-námi í lögfræði við lagadeild Háskóla Íslands. Kosningastjóri er ekki kjörgengur á aðalfundi ORATORS og má ekki sitja í stjórn þess. Kosningastjóri skal skipa aðalfundi ritara.
Allir meðlimir í ORATOR eru kjörgengnir til stjórnar ORATORS á aðalfundi félagsins. Afl atkvæða ræður úrslitum. Reynist atkvæði jöfn skal hlutkesti ráða úrslitum.
Heimilt er að halda utankjörfundaratkvæðagreiðslu sama dag og kosning stjórnar fer fram. Atkvæðagreiðsla skal fara fram á skrifstofu Orators og má að hámarki standa í tvær klukkustundir. Stjórn Orators í samráði við kosningastjóra ákveður nánari tímasetningu og auglýsir utankjörfundaratkvæðagreiðslu með hæfilegum fyrirvara.
12. gr.
Dagskrá aðalfundar skal vera: 1. Skýrsla stjórnar. 2. Stjórnin leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins. 3. Umræður um skýrslur og reikninga. 4. Lagabreytingar 5. Kosning stjórnar fyrir næsta starfsár. 6. Hin nýkjörna stjórn tekur formlega við völdum og vottar GRÁGÁS virðingu sína. 7. Kappdrykkja öls milli fráfarandi stjórnar og nýkjörinnar stjórnar. 8. Drengja- og stúlknakór. 9. Kosning ferðamálráðs. 10. Kosning fulltrúa og varafulltrúa á deildarfundi lagadeildar, skulu þeir kosnir til tveggja ára. Fjöldi deildarfulltrúa skal fara eftir reglum Háskóla Íslands. Varaformaður félagsins er sjálfkjörinn deildarfundarfulltrúi til eins árs. 11. Kosning eins fulltrúa í námsnefnd og annan til vara, til tveggja ára í senn. 12. Kosning ritstjóra GRÍMS GEITSKÓS. 13. Kjör tveggja skoðunarmanna. Hvorki mega þeir eiga sæti né hafa átt sæti í stjórn ORATORS eða vera, eða hafa verið, framkvæmdastjórar ÚLFLJÓTS. Skoðunarmenn skulu ráðfæra sig við gjaldkera stjórnar fyrri árs. 14. Kosning þriggja laganema í Lagaráð ORATORS, sbr. 15. gr. 15. Önnur mál.
13. gr.
Lögum félagsins verður aðeins breytt á aðalfundi félagsins. Tillögum til lagabreytinga skal skilað til stjórnar félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund og þær auglýstar skv. 4. málsl. 1. mgr. 11. gr. Nái tillaga til lagabreytinga samþykki 2/3 hluta fundarmanna, fær hún gildi þá þegar. Tillögur til breytinga á lögum verða ekki teknar til meðferðar nema fjórðungur félagsmanna hið fæsta sé viðstaddur.
14. gr.
Nú hefur tillaga til lagabreytinga komið fram á réttum tíma, en ekki er mættur tilskilinn fjöldi félagsmanna skv. 13. gr. og skal þá efna til framhaldsaðalfundar um tillöguna. Er sá fundur lögmætur og ályktunarfær um lagabreytinguna án tillits til fundarsóknar og fær tillagan gildi ef 2/3 fundarmanna samþykka hana.
15. gr.
Lagaráð skal vera starfrækt innan ORATORS. Hlutverk ráðsins skal vera að endurskoða lög félagsins og leggja fram tillögur til breytinga þar að lútandi. Ráðið skipa formaður og varaformaður ORATORS auk þriggja laganema sem kjörnir skulu á aðalfundi ORATORS skv. 12. gr. Eigi færri en fjórir fundir skulu haldnir í ráðinu ár hvert. Á fyrsta fundi ráðsins skulu ráðsmenn kjósa sér formann og ritara. Einfaldur meirihluti ræður niðurstöðunni.
16. gr.
Að loknum aðalfundi skal fráfarandi Lagaráð ORATORS birta lög félagsins með tryggilegum hætti.
IV. STJÓRN FÉLAGSINS
17. gr.
Stjórn félagsins skipa sjö laganemar við Háskóla Íslands: Formaður, varaformaður, ritstjóri ÚLFLJÓTS og 4 meðstjórnendur: Alþjóðaritari, funda- og menningarmálastjóri, skemmtanastjóri og gjaldkeri.
18. gr.
Stjórnin er kjörin til eins árs í senn. Allir stjórnarmenn skulu kosnir sérstaklega: formaður, varaformaður, ritstjóri ÚLFLJÓTS, alþjóðaritari, funda- og menningarmálastjóri, gjaldkeri og skemmtanastjóri. Stjórn félagsins skipar nefndir á vegum þess.
19. gr.
Formaður hefur yfirumsjón með starfsemi stjórnar. Formaður stýrir fundum, í forföllum hans varaformaður. Formaður, í fjarveru hans varaformaður, kemur fram fyrir hönd ORATORS í samskiptum við aðila utan lagadeildar.
Varaformaður ritar fundargerðir, heldur sérstaka bréfabók yfir send og aðkomin bréf og ber ábyrgð á hagsmunamálum laganema.
Gjaldkeri skal jafnan halda eignaskrá yfir verðmæta muni félagsins og færa sanngjarnt matsverð til eigna í reikninga. Gjaldkeri hefur einn umsjón með fjárráðum félagsins þar með talið allra nefnda og ráða nema annað sé kveðið á um í lögum þessum.
Alþjóðaritari skal sjá um samskipti ORATORS við erlend laganemafélög, og bera ábyrgð á heimsóknum þeirra til Íslands.
Funda- og menningarmálastjóri skal sjá um menningarlegar uppákomur, sem fram fara á vegum félagsins. Hann skal standa að lágmarki fyrir tveimur málþingum um lögfræðileg álitaefni á hvoru misseri.Einnig ber funda- og menningarmálastjóri ábyrgð á framkvæmd Málflutningskeppni Orators. Stjórn ORATORS skipar funda- og menningarmálanefnd að tillögu funda- og menningarmálastjóra. Í henni skulu sitja að hámarki fjórir laganemar. Skulu nefndarstörfin auglýst laus til umsóknar.
Skemmtanastjóri skal sjá um allar skemmtanir, sem fram fara á vegum félagsins. Stjórn ORATORS skipar skemmtinefnd að tillögu skemmtanastjóra. Í henni skuli sitja að hámarki átta laganemar. Skulu nefndarstörfin auglýst laus til umsóknar.
20. gr.
Í félaginu skal vera heiðursráð, skipað fyrrverandi formönnum, varaformönnum og ritstjórum sem lokið hafa embættisprófi í lögfræði. Auk þess getur aðalfundur nefnt lögfræðinga í ráðið, sem sýnt hafa sérstakan áhuga á hagsmunum laganema. Stjórn félagsins á hverjum tíma á sæti í heiðursráði og kveður það saman til fundar. Skal ráðið koma saman við undirbúning ýmissa stórviðburða. Heiðursráðið skal vera stjórn ORATORS til ráðuneytis.
21. gr.
Stjórn félagsins ræður málefnum þess með þeim takmörkunum, sem lög þessi setja. Hún tekur nánari ákvarðanir um starfsemi þess og er ábyrg fyrir fjárreiðum og skuldbindingum gagnvart öðrum aðilum. Stjórn ORATORS skipar í nefndir, ráð og embætti á vegum félagsins með þeim takmörkunum sem 12. gr. setur.
22. gr.
Stjórn ORATORS er óheimilt að gera samninga eða stofna til fjárskuldbindinga sem til þess eru fallnar að binda hendur komandi stjórna. Séu samningar gerðir til lengri tíma en eins árs í senn, skulu þeir innihalda uppsagnarákvæði ORATOR til handa.
23. gr.
Stjórnarfundi skal boða með tryggilegum hætti og með eins dags fyrirvara, ef unnt er. Stjórnarfundur er ályktunarfær ef fimm stjórnarmenn hið fæsta sækja fund og sitja. Afl atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundum.
24. gr.
Stjórninni er skylt að efna til almenns fundar, ef 15 félagar hið fæsta óska þess skriflega. Almennir fundir skulu auglýstir tryggilega og með eigi minna en tveggja daga fyrirvara.
25. gr.
Hátíðisdagur ORATORS er 16. febrúar ár hvert, sbr. 5. tl. 3. gr. Stjórn félagsins skipar hátíðarnefnd, að undangenginni auglýsingu meðal laganema, er annast undirbúning hátíðarinnar, og skal skemmtanastjóri vera formaður hennar.
26. gr.
Nú kemur fram vantraust á stjórnarmeðlim félagsins, og skal það þá hljóta sömu meðferð og afgreiðslu og lagabreytingar hvað snertir birtingarfrest, auglýsingu og samþykki. Nái vantraust fram að ganga skal fundarstjóri þess fundar boða til almenns félagsfundar innan tveggja vikna með tryggilegum hætti og a.m.k. viku fyrirvara. Skal þar kjósa bráðabirgða stjórnarmeðlim samkvæmt fundarsköpum félagsins sem situr fram að næsta aðalfundi. Sömu reglur skulu gilda ef stjórnarmeðlimur ORATORS segir af sér.
V. HAGSMUNAMÁL
27. gr.
Deildarfulltrúar kjörnir skv. 10. tl. 12. gr. laga ORATORS skulu fara með málefni laganema á deildarfundum og gæta hagsmuna þeirra þar.
Námsnefndarfulltrúar kjörnir skv. 11. tl. 12. gr. laga ORATORS skulu fjalla um tillögur um námsefni í hverri kennslugrein, semja umsagnir og tillögur um námsskipan og kennslufyrirkomulag greinarinnar.
28. gr.
Varaformaður skal skipa eigi síðar en í annarri viku haustmisseris, að undangenginni auglýsingu meðal laganema, einn nemanda af hverju ári sem fulltrúa síns árgangs til þess að gæta hagsmuna hans hvað varðar kennslu og námskipan. Skal fulltrúi koma ábendingum á framfæri við viðkomandi kennara ef á þarf að halda og vera tengiliður ársins við hagsmunaráð. Er honum þá skylt að kynna sig og aðstoðarmenn sína fyrir öðrum nemendum árgangsins sem og öllum kennurum sem koma að kennslu hans. Heimilt er að skipa einn hagsmunafulltrúa í stað tveggja fyrir meistaranámið í heild sinni. Skipaður hagsmunafulltrúi skal velja sér einn til tvo nemendur, með samþykki varaformanns, úr sínum árgangi sér til aðstoðar og til að efla umræður um hagsmunamál nemenda.
Varaformaður skal skila lista yfir fulltrúa allra árganga til skrifstofu lagadeildar eigi síðar en viku eftir skipan þeirra.
29. gr.
Innan ORATORS skal starfa hagsmunaráð. Í því sitja varaformaður ORATORS, deildarfulltrúar og námsnefndarfulltrúar laganema, ásamt hagsmunafulltrúum hvers árs og skal hagsmunaráð vera samstarfsvettvangur þeirra. Hagsmunaráð skal marka stefnu ORATORS í málefnum sem varða laganámið almennt og kennsluhætti. Varaformaður ORATORS er formaður hagsmunaráðs og kallar það saman.
VI. ÚLFLJÓTUR
30. gr.
Rit laganema heitir ÚLFLJÓTUR. Fjögur rit skulu gefin út ár hvert. Fyrsta ritið skal gefa út eigi síðar en 31. gr. október. Annað ritið skal gefa út eigi síðar en 31. janúar. Þriðja ritið skal gefa út eigi síðar en 15. mars og fjórða ritið skal gefa út eigi síðar en 15. september. Ritstjóri ber ábyrgð á efni ritsins. Ritið fá félagsmenn ORATORS sér að kostnaðarlausu gegn framvísun félagsskírteinis, en þó einungis sé þess vitjað innan níu mánaða frá útgáfu.
31. gr.
ÚLFLJÓTUR skal starfrækja sjóð er ber heitið Fræðasjóður ÚLFLJÓTS. Markmið sjóðsins skal vera að efla fræðastarf og rannsóknarvinnu á sviði lögfræði, sérstaklega meðal laganema og kennara við lagadeild Háskóla Íslands. Styrkir skulu veittir að vori hvers árs og má heildarfjárhæð þeirra nema allt að kr. 600.000. Stjórn sjóðsins skipa: framkvæmdarstjórar ÚLFLJÓTS, ritstjóri ÚLFLJÓTS, forseti lagadeildar Háskóla Íslands og forstöðumaður Lagastofnunar Háskóla Íslands. Laganemar skulu ávallt skipa meiri hlutar stjórnar sjóðsins. Nánar fer um sjóðinn skv. skipulagsskrá, sem sett skal af stjórn sjóðsins.
32. gr.
Í hverju tölublaði ÚLFLJÓTS skal birtast a.m.k. ein fræðigrein um lögfræðileg efni. Reynt skal að örva fræðistörf laganema með birtingu fræðigreina eftir þá, verðlaunasamkeppni o.þ.h. Heimilt er að skipa nefnd þriggja valinkunnra lögfræðinga, sem ritstjóri getur leitað álits hjá um efnisval blaðsins.
33. gr.
Ritstjóri ÚLFLJÓTS skipar minnst fimm menn í ritnefnd, er auk ritstjóra hefur með hendi ritstjórn ÚLFLJÓTS. Skulu stöður ritnefndarmanna auglýstar. Ritnefndin skal vera ritstjóra til aðstoðar og ráðuneytis um öll mál er varða blaðið. Ritstjóri er formaður ritstjórnar.
34. gr.
Í upphafi júlímánaðar ár hvert skal stjórn ORATORS, að tillögu fráfarandi framkvæmdastjóra og ritstjóra ÚLFLJÓTS, skipa tvo laganema við Háskóla Íslands til að gegna stöðum framkvæmdarstjóra ÚLFLJÓTS. Auglýsa skal embætti framkvæmdastjóra ÚLFLJÓTS meðal laganema. Viðtakandi framkvæmdastjórar skulu þó eigi hefja störf fyrr en í upphafi ágústmánaðar.
Þegar framkvæmdastjórar taka við starfi sínu skulu þeir setja sér sérstakar verklagsreglur er kveða m.a. á um föst mánaðarlaun er þeir þiggja fyrir störf sín, og að auki gera fjárhagsáætlun í upphafi haustannar, og skal vera tilbúin eigi síðar en 15. september ár hvert. Verklagsreglurnar og fjárhagsáætlunin skulu bornar undir fráfarandi framkvæmdastjóra og samþykktar af formanni ORATORS og ritstjóra ÚLFLJÓTS.
Framkvæmdarstjórar skipa framkvæmdastjórn ÚLFLJÓTS. Framkvæmdastjórnin skal annast daglegan rekstur ritsins, dreifingu þess sem og öflun auglýsinga í það. Í því sambandi er framkvæmdastjórn heimilt að ráða sérstakan auglýsingasafnara. Framkvæmdastjórn ákveður kjör hans og ber ábyrgð á þeim. Framkvæmdastjórnin skal halda utan um og bera ábyrgð á fjárreiðum ÚLFLJÓTS sem og sjá um bókhaldsuppgjör tímaritsins. Þá skulu formaður ORATORS og ritstjóri ÚLFLJÓTS hafa aðgang að bókhaldi og öllum gögnum varðandi fjárreiður ÚLFLJÓTS. Jafnframt ber framkvæmdastjórnin ábyrgð á efni, sem gefið er út í nafni ÚLFLJÓTS, öðru en því sem ritstjóri ber ábyrgð á skv. 30. gr. Þá skal stjórnin og annast rekstur bóksölu ÚLFLJÓTS sem og heimasíðu tímaritsins.
Fjárskuldbindingar, að fjárhæð kr. 100.000 eða meira, fyrir hvern einstakan atburð eða viðburð, skulu ekki öðlast gildi nema að fenginni staðfestingu framkvæmdastjóra ÚLFLJÓTS, ritstjóra ÚLFLJÓTS auk formanns ORATOR. Ekki þarf að leita eftir leyfi þessu, gagnvart fjárútlátum er varða rekstur bóksölu ÚLFLJÓTS. Samningar sitjandi framkvæmdastjórnar eða ritstjórnar er varða málefni ÚLFLJÓTS mega ekki gilda lengur en til upphafs síðara misseris þess skólaárs sem viðtakandi stjórnir koma til með að sitja.
Framkvæmdastjórn ÚLFLJÓTS, Ritstjóri ÚLFLJÓTS og formaður ORATORS skulu funda á þriggja mánaða fresti og skal framkvæmdastjórn veita þeim uppýsingar um rekstur ÚLFLJÓTS skv. 2.- 4. mgr. Formaður ORATORS og ritstjóri ÚLFLJÓTS eru bundnir fullkomnum trúnaði gagnvart þeim upplýsingum er varða rekstur ÚLFLJÓTS.
35. gr.
Ritstjóri og framkvæmdastjórar skipa stjórn sem og útgáfuráð ÚLFLJÓTS. Sérútgáfur á vegum Úlfljóts skulu vera í höndum útgáfuráðs. Ritstjóri stýrir fundum þess.
36. gr.
Hagnaði af starfsemi ÚLFLJÓTS skal eingöngu varið til reksturs, útgáfu og annarrar starfsemi á vegum ÚLFLJÓTS, laganemum til heilla, en ekki til reksturs ORATORS. Reikningum ÚLFLJÓTS skal haldið sérgreindum. Skal þeim lokað 2 sólarhringum fyrir aðalfund og skilað til endurskoðanda félagsins sólarhring fyrir aðalfund.
VII. LÖGBERGSDÓMUR
37. gr.
Orator og Úlfljótur skulu í sameiningu starfrækja dómstól laganema, er ber heitið LÖGBERGSDÓMUR, og skal hann halda dómþing í stofu 203 í Lögbergi.
Við LÖGBERGSDÓM skal skipa einn dómstjóra. Skal hann vera skipaður frá og með 1. júní ár hvert. Embætti dómstjóra skal vera auglýst laust til umsóknar eigi síðar en 1. maí. Þann einn má skipa í embætti dómstjóra sem lokið hefur BA-prófi frá lagadeild Háskóla Íslands. Í embætti dómstjóra skal sá veljast sem skipunarmenn meta hæfastan til starfans. Við mat á hæfni umsækjanda skal meðal annars líta til námsárangurs, starfsreynslu og framtakssemi.
Eftirtaldir aðilar skipa í embætti dómstjóra: Fráfarandi dómstjóri LÖGBERGSDÓMS, formaður ORATORS og ritstjóri ÚLFLJÓTS.
Í LÖGBERGSDÓMI eiga sæti einn eða þrír dómarar. Dómarar skulu vera skipaðir í hvert mál fyrir sig. Þann einn má skipa í embætti Lögbergsdómara sem lokið hefur BA-prófi í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands. Við mat á því hvort skipa skuli einn eða þrjá dómara til setu í máli skal líta til umfangs málsins, viðfangsefni þess og mögulega þörf á sérþekkingu. Ef skipunarmenn í embætti Lögbergsdómara telja mál krefjast þess að skipaðir séu sérfróðir meðdómendur er það heimilt, skal þá Lögbergsdómari gegna formennsku í dómnum. Við mat á því hvern skal skipa í embætti Lögbergsdómara skal líta til námsárangurs, starfsreynslu, námsframvindu og samskiptahæfni. Ef skipaðir eru þrír Lögbergsdómarar skulu þeir kjósa sér forseta sem fer með formennsku í dómnum.
Eftirtaldir aðilar skipa í embætti Lögbergsdómara: Dómstjóri LÖGBERGSDÓMS, formaður ORATORS og ritstjóri ÚLFLJÓTS.
Dómstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri LÖGBERGSDÓMS og fer með fjárreiður hans. Dómstjóri undirbýr mál sem lögð eru fyrir LÖGBERGSDÓM og aðstoðar aðila máls eftir því sem við á.
Ef aðili fer ekki sjálfur með mál sitt fyrir LÖGBERGSDÓMI eða sá sem að lögum getur verið fyrirsvarsmaður hans í dómsmáli verður ekki öðrum en þeim er lokið hafa prófi í Réttarfari I frá lagadeild Háskóla Íslands falið að gæta þar hagsmuna hans. Ef fleiri aðilar flytja mál í sameiningu þarf einn þeirra að uppfylla fyrrgreind skilyrði um að hafa lokið prófi í Réttarfari I.
VIII. GRÍMUR GEITSKÓR
38. gr.
Fréttablað laganema heitir GRÍMUR GEITSKÓR. Skylt er að gefa GRÍM GEITSKÓ út a.m.k. tvisvar á misseri. Efni blaðsins skal vera virðingu laganema samboðið og má ekki vera mjög móðgandi í garð einstakra laganema, kennara eða annarra einstaklinga. Ritstjóri ber einn ábyrgð á efni blaðsins.
39. gr.
Stjórn ORATORS skipar GRÍMI GEITSKÓ ritstjórn að tillögu ritstjóra hans.
40. gr.
Útgáfukostnaður GRÍMS GEITSKÓS greiðist úr sjóði ORATORS, enda standi auglýsingatekjur ekki undir kostnaði blaðsins. Skal reikningum GRÍMS GEITSKÓS ekki haldið sérgreindum.
IX. FERÐASJÓÐUR
41. gr.
Heimilt er að starfrækja sjóð, er nefnist ferðasjóður ORATORS.
42. gr.
Hlutverk sjóðsins er að styðja og efla ferðalög íslenskra laganema á mót og málflutningskeppnir laganema á erlendri grund. Með stjórn sjóðsins fer ferðamálaráð ORATORS. Ferðamálaráð er skipað þremur mönnum: Alþjóðaritara ORATORS, sem er formaður ráðsins, gjaldkera ORATORS og einum kosnum á aðalfundi ORATORS ár hvert.
43. gr.
Ferðamálaráð skal sjá um ávöxtun sjóðsins hverju sinni. Höfuðstóll sjóðsins skal ávallt vera að lágmarki 300.000 kr. Höfuðstól sjóðsins ásamt verðbótum má aldrei skerða. Úthlutað skal úr sjóðnum ár hvert. Við úthlutun skal tekið mið af eftirfarandi: 1. Einungis þeir sem starfað hafa í þágu ORATORS geta vænst þess að hljóta styrk úr Ferðasjóði ORATORS. 2. Störf félagsmanna skulu metin samkvæmt stigakerfi sem hér segir: a. Seta í stjórn ORATORS – 6. stig. b. Seta í nefndum og sambærileg störf á vegum ORATORS – 2. stig. c. Móttaka og viðgjörningar við erlenda gesti ORATORS – 1. stig. d. Önnur störf í þágu ORATORS – 1. stig. Alþjóðaritari eða fulltrúi hans fær þó styrk úr Ferðasjóði ORATORS án tillits til annarra styrkveitinga skv. reglum þessum, þegar fundur Norræna Alþjóðaritararáðsins (Nordiska Sekretariatet möte) og samkoma Norræna Alþjóðaritararáðsins (Nordiska Sekretariatet samling) eru haldnir.
44. gr.
Reikningum sjóðsins skal haldið aðgreindum.
X. VARASJÓÐUR ORATORS
45. gr.
Til staðar skal vera varasjóður ORATORS og höfuðstóll hans skal vera að lágmarki 500.000 kr. Höfuðstól sjóðsins ásamt verðbótum má aldrei skerða nema með samþykki tilsjónarmanna hans. Þeir skulu vera þrír síðustu formenn ORATORS, en sé einhver þeirra forfallaður skal leita til þess fyrrverandi formanns Orators sem næstur er í röðinni. Markmið sjóðsins skal vera að mæta fjárhagslegum áföllum sem ORATOR kann að verða fyrir vegna ófyrirsjáanlegra atvika. Sjóðurinn skal ávaxtaður
46. gr.
[...]
47. gr.
Óheimilt er að leggja niður varasjóð ORATORS nema með samþykki ¾ hluta atkvæða aðalfundar og skal minnst helmingur félagsmanna sækja fund.
XI. ÝMIS ÁKVÆÐI
48. gr.
Félaginu er heimilt að starfrækja lögfræðiaðstoð ORATORS. Stjórn ORATORS skipar tvo í embætti framkvæmdastjóra lögfræðiaðstoðar ORATORS að undangenginni auglýsingu meðal laganema. Skulu önnur störf við lögfræðiaðstoð ORATORS auglýst með sama hætti. Í embætti framkvæmdastjóra og önnur störf skulu þeir veljast sem stjórn ORATORS metur hæfasta til starfans. Við mat á hæfni umsækjanda skal meðal annars litið til námsárangurs, starfsreynslu, og samskiptahæfni. Stjórn ORATORS er heimilt að boða umsækjendur á sinn fund í því skyni að leggja frekara mat á hæfni þeirra.
Jafnframt er ORATOR heimilt að starfrækja lögfræðiaðstoð á veraldarvefnum. Stjórn ORATORS skal skipa faglegan framkvæmdastjóra og skal hann sjá um starfsemi vefjarins. Í því felst að fá laganema til starfa við vefinn og að vinna að fjármögnun hans í samstarfi við stjórn ORATORS. Framkvæmdastjórar lögfræðiaðstoðar ORATORS og lögfræðiaðstoðarinnar á vefnum skulu halda reglulega fundi í þeim tilgangi að efla og bæta þjónustu ORATORS.
49. gr.
Félagið skal starfrækja ATVINNUNEFND ORATORS er gegnir því hlutverki að koma á samstarfi milli Orators og fyrirtækja og/eða stofnana um ráðningar laganema við lagadeild Háskóla Íslands í lögfræðitengd störf.
Markmið ATVINNUNEFNDAR ORATORS eru að efla tengsl nemenda í lagadeild Háskóla Íslands við íslenskt atvinnulíf.
Atvinnunefndin skal koma tilkynningum um lausar stöður á framfæri við nemendur með markvissum hætti, svo sem með tölvupóstsendingum á alla laganema og auglýsingum í Lögbergi.
Atvinnunefndin kemur ekki að ráðningunum sjálfum að neinu leyti, hvorki með mati á umsóknum, umsækjendum né öðrum hætti. Atvinnunefndinni er þó heimilt, sé þess sérstaklega óskað af viðsemjendum hennar, að safna saman og halda til haga umsóknum. Það skal þó gert í samvinnu við skrifstofu lagadeildar.
Framkvæmdastjórar nefndarinnar skulu vera tveir. Í upphafi septembermánaðar ár hvert skal auglýsa stöðu framkvæmdastjóra ATVINNUNEFNDAR ORATORS og að tillögu fráfarandi framkvæmdastjóra skal stjórn ORATORS skipa tvo laganema við Háskóla Íslands til að gegna stöðum framkvæmdarstjóra ATVINNUNEFNDAR ORATORS.Framkvæmdastjórum ATVINNUNEFNDAR ORATORS er heimilt að tilnefna tvo laganema við Háskóla Íslands sér til aðstoðar við almenn atvinnunefndarstörf.
50. gr.
Eftir hvern aðalfund skal stjórn ORATORS koma saman og skipa í eftirfarandi embætti:
Sérstakan rannsóknar- og aðhaldsstjóra, að undangenginni auglýsingu meðal laganema. Hlutverk hans skal vera að vinna að hagsmunamálum félagsins og laganema í hvívetna og má honum ekkert mannlegt vera óviðkomandi. Raðhaldsstjóri, sem svo skal nefndur í daglegu tali, ber einungis ábyrgð gagnvart aðalfundi.
Ritstjóra heimasíðu félagsins, www.orator.is. Hlutverk hans skal vera að uppfæra og halda utan um efni síðunnar. Auglýsa skal stöðuna meðal laganema.
Minnst tvo íþróttajöfra sem bera ábyrgð á íþróttalífi laganema.
Einn fulltrúa í Orðunefnd Orators. Hann ásamt formanni, varaformanni og ritstjóra Úlfljóts skipa nefndina og setja nánari reglur um orður félagsins.
51. gr.
Í kjallara Lögbergs skal haldið uppi sérstöku félagsherbergi laganema. Allir skulu ganga vel um herbergið í hvívetna.
52. gr.
Meiriháttar ágreining um lög þessi skal útkljá af gerðardómi. Skal stjórn ORATORS kjósa einn mann í dóminn, félagsfundur annan og forseti lagadeildar tilnefna oddamann úr hópi lögfræðinga.
53. gr.
Félaginu skulu sett sérstök fundarsköp.
54. gr.
Nú kemur fram tilllaga um að félaginu skuli slitið og skal hún þá sæta sömu meðferð og tillaga til lagabreytinga skv. 13. gr., sbr. 24. gr. Ákvæði 14. gr. eiga ekki við um slíka tillögu.
55. gr.
Sé félaginu slitið skulu eignir þess fengnar lagadeild til varðveislu, þar til laganemar stofna annað félag, sem ótvírætt telst arftaki ORATORS, og fær það þá eignirnar.
Þannig samþykkt á framhaldsaðalfundi ORATORS hinn 29. mars 2012.



