Orator
Starfsemi Orator hefur alla jafna verið fjölbreytt og kraftmikil. Laganemar eru sem fyrr þekktir fyrir frábært félagslíf og öflugt fræðastarf þrátt fyrir mikinn lestur í hefðbundnu námi sínu. Orator stendur fyrir mörgum árlegum uppákomum auk þess sem sífellt bætast við nýir og skemmtilegir viðburðir. Meðal fastra liða í félagslífinu eru heimsóknir á lögmannsstofur, í stofnanir og fyrirtæki, árleg Þingvallaferð nýnema, ræðu- og íþróttakeppnir, málþing og aðrir menningartengdir viðburðir. Þá sinnir félagið öflugri hagsmunagæslu fyrir laganema við Háskóla Íslands.
Hápunktur hvers skólaárs er glæsileg árshátíð Orator sem haldin er á afmæli Hæstaréttar og hátíðisdegi félagsins, 16. febrúar.
Þá er Orator í öflugum samskiptum við erlenda laganema. Félagið stendur fyrir heimsókn bandarískra laganema á hverju ári og þá heimsækja félagið einnig norrænir laganemar í viku í febrúar og fagna hátíðisdegi Orator með félagsmönnum.
Þeir nemendur eða útskrifaðir "Oratorar" sem luma á upplýsingum, eldri myndum eða öðru efni sem á heima á þessari síðu eru beðnir um að setja sig í sambandi við stjórn á netfangið orator@hi.is.
Hefur þú áhuga á að ráða laganema í lögfræðitengd störf? Stjórn Orators kemur atvinnuauglýsingum gjarnan á framfæri. Auglýsingar birtast bæði hér á síðunni og eru sendar í tölvupósti til allra nemenda lagadeildar HÍ, sem eru um 800 talsins. Endilega hafðu samband á netfangið orator@hi.is.



