Netfang: Lykilorð: Fá sent lykilorð

Nemendur

Hér má fræðast um málefni er varða nemendur lagadeildar. Má þar nefna upplýsingar fyrir nýnema við deildina, afslætti sem félagsmenn Orator hljóta o.fl.

Sérstök athygli er vakin á skráningarkerfi fyrir kokteila á vegum Orator, sjá hlekkinn „KOKTEILAR - skráning” til hægri.

Einnig er vakin athygli á skilaboðaskjóðu þar sem hægt er að koma skilaboðum er varða námið, kennsluhætti og aðra hagsmuni laganema á framfæri við hagsmunafulltrúa námsára eða varaformann Orator. 

Spjallborðið okkar gamla góða er einnig komið í gagnið en það á eftir að fínpússa það örlítið. Það nægir að vera innskráður til að taka þátt í spjallinu, ekki er þörf á að nýskrá sig aftur.

Upplýsingar um afslætti og tilboð verða sett inn þegar félagsskírteinin berast. 

Allar ábendingar um efni sem á heima hér á vefsvæðinu eru vel þegnar og skal senda á orator@hi.is.

 

 

Vinsælustu síðurnar