Netfang: Lykilorð: Fá sent lykilorð

Miðasala á árshátíð Orators

Posted by Kristín Lára Helgadóttir on 7 February 2010 | 1 Comments

Ágætu laganemar
Miðasala fyrir árshátíð Orators hefst á morgun í Lögbergi kl. 13:00. Selt
verður til kl. 17:00 sama dag.
Á þriðjudeginum verður selt í Háskólabíó frá kl. 9:00-11:30 og Lögbergi
frá kl. 9:00-17:00. Þá er miðasölu lokið.
Vinsamlegast athugið að 1. árið mun aðeins geta keypt miða í Háskólabíó á
þriðjudag fyrir hádegi en ekki í Lögbergi á sama tíma.

Miðaverð er 5900 kr fyrir Orator meðlimi en 6900 kr fyrir aðra. Fyrirfram
er borðum skipt eftir námsárum, og liggur það fyrirkomulag fyrir við
söluborðið. Gott er ef laganemar hafa gert einhver plön með hvaða
samnemendum sínum þeir vilja sitja.
Ef þið óskið eftir að fá grænmetisrétt á árshátíðinni í stað
steikarhlaðborðs þá verður að taka það fram við miðakaup.


Vinsamlegast hafið Orator skírteini meðferðis og sýnið tillitssemi og
þolinmæði við miðakaup.


Árshátíðarnefnd Orators

 


Senda inn athugasemd

Athugasemdir

  • Hvar eru myndirnar?

    Posted by Lárus Gauti Georgsson, 08/02/2010 10:03am (1 month ago)

RSS slóð fyrir athugasemdir á þessari síðu | RSS slóð fyrir allar athugasemdir

Vinsælustu síðurnar