Netfang: Lykilorð: Fá sent lykilorð

Lögfræðiaðstoð

Lögfræðiaðstoð Orator hefur tekið til starfa á ný eftir sumarleyfi. 

Síminn hjá lögfræðiaðstoðinni er opin á fimmtudagskvöldum frá kl.
19:30-22:00
frá 1. október fram í byrjun maímánaðar að undanskyldu
próftímabili laganema í desember.

Símanúmerið hjá lögfræðiaðstoðinni er 551-1012.

Lögfræðiaðstoð Orator er endurgjaldslaus lögfræðiaðstoð félags laganema
við Háskóla Íslands. Aðstoðin felst í því að almenningi gefst kostur á að
hringja inn nafnlaust og bera upp spurningar um lögfræðileg álitaefni sér
að kostnaðarlausu. Fyrir svörum sitja þá 2 - 3 laganemar í meistaranámi.

Þess má geta að laganemarnir hafa ávallt verið bundnir þagnarskyldu við
störf sín hjá lögfræðiaðstoðinni.

Lögfræðiaðstoð Orator hefur verið starfrækt frá 15. janúar 1981 með það að
markmiði að gefa almenningi kost á upplýsingum um réttarstöðu sína án þess
að endurgjald komi fyrir. Mest er verið að leita aðstoðar á sviði
hjúskaparréttar, sifjaréttar og vegna persónulegra málefna en einnig er
mikið spurt um kröfurétt og samningarétt. Margir nýta sér þessa þjónustu,
enda um mjög þarfa þjónustu að ræða fyrir almenning en er einnig góð
þjálfun fyrir laganema áður en þeir halda út á vinnumarkaðinn.

 

 

 

 

Vinsælustu síðurnar