Orator » Lögbergsdómur
Lögbergsdómur er nýr og glæsilegur dómsalur, sem staðsettur er á annarri hæð í Lögbergi. Dómsalurinn var formlega tekinn í notkun hinn 28. mars 2007. Frumkvæði að framkvæmdum við salinn áttu þáverandi framkvæmdastjórar Úlfljóts, Einar Björgvin Sigurbergsson og Jóhannes Eiríksson, en þeir sáu og um öflun styrkja vegna verkefnisins. Þau félög sem styrki veittu voru Landsbankinn, ESSÓ, Hollvinafélag lagadeildar og dómsmálaráðuneytið. Í dómsalnum hefur og aðsetur sérstakur dómstóll laganema við Háskóla Íslands, er ber sama heiti og salurinn sjálfur, þ.e. Lögbergsdómur. Frumkvæði að stofnun dómstólsins var einnig í höndum Einars Björgvins og Jóhannesar, en stofnunin var samþykkt með breytingu á lögum Orators hinn 3. apríl 2007.
Vinsælustu síðurnar