Lagadeild

Lagadeild Háskóla Íslands er elsti og stærsti lagaskóli á Íslandi með liðlega 750 nemendur. Við deildina eru 23 fastráðnir kennarar, þar af átján í fullu starfi við kennslu og rannsóknir, prófessorar, dósentar og lektorar. Sex aðjúnktar starfa við deildina auk fjölmargra stundakennara. Lagadeild leggur metnað í að bjóða upp á nám sem er þekkt fyrir gæði og í takt við það besta sem býðst annars staðar í heiminum. Í boði er mikill fjöldi námskeiða á hverju námsári auk þess sem nemendur geta tekið námskeið í öðrum deildum Háskólans og erlendum háskólum. Orator, félag laganema, heldur uppi einu öflugasta félagslífi innan Háskólans.

Markmið lagadeildar er að tryggja metnað, gæði og árangur í lagakennslu. Því eru gerðar miklar kröfur til nemenda jafnt sem kennara og lögð áhersla á nám í undirstöðugreinum lögfræðinnar. Nemendur eru þjálfaðir til að vinna sjálfstætt að rannsóknum og leysa úr hvers kyns lögfræðilegum álitaefnum auk þess sem þeir eru búnir undir störf, þar sem reynir á alhliða og staðgóða lögfræðiþekkingu.

Nemendur sem hyggja á laganám þurfa að hafa góðan grunn úr framhaldsskóla. Mikilvægt er að nemendur búi yfir góðri íslenskukunnáttu auk þess að hafa góð tök á dönsku og ensku. Þá skal nemendum bent á að margir framhaldsskólar bjóða upp á námskeið í lögfræði sem er ágætis undirbúningur fyrir nám í deildinni.

Í lagadeild er námsframboð ávallt í takt við þarfir atvinnulífsins og boðið upp á nýjasta námsefni sem völ er á hverju sinni. Lagadeild hefur á undanförnum misserum tekið upp virkt samstarf við fyrirtæki og stofnanir á sviði rannsókna og kennslu með gerð styrktar- og samstarfssamninga.

Við lagadeild starfa helstu sérfræðingar landsins á flestum sviðum lögfræði. Frá atvinnulífinu koma lögmenn og lögfræðingar með sérþekkingu að kennslu sem stundakennarar. Er mikill metnaður af hálfu allra kennara deildarinnar að koma þekkingu sinni á íslenskri lögfræði og íslensku réttarkerfi á sem skilvirkastan og áhrifaríkastan hátt til nemenda sinna.

Lagadeild Háskóla Íslands hefur fyrr og síðar verið höfuðvígi rannsókna í lögfræði. Því gefst nemendum við deildina möguleiki á að kynnast slíkum rannsóknum og taka þátt í þeim. Nemendur eru hvattir til að gerast aðstoðarmenn kennara auk þess sem þeir fá tækifæri til að taka þátt í stærri rannsóknaverkefnum.

Nánast allar kennslubækur og önnur rit um lögfræði eru ritaðar af kennurum lagadeildar. Það er afrakstur rannsókna þeirra og eru ritin notuð til kennslu í öðrum lagadeildum.

Undirstaða alls rannsóknarstarfs er að hafa aðgang að góðu bókasafni. Bókasafnið í Lögbergi er stærsta sérfræðisafn á sviði lögfræði í landinu. Í safninu eru um 10 þúsund bækur og nýjustu árgangar um 50 tímarita í prentaðri útgáfu. Einnig er rafrænn aðgangur að tæplega þrjú hundruð tímaritum sem tengjast lögfræði á einn eða annan hátt.

Árið 2006 voru í fyrsta sinn veittar viðurkenningar fyrir námsárangur á BA-prófi og meistaraprófi við lagadeild. LOGOS lögmannsþjónusta, ein stærsta og virtasta lögmannsstofa landins veitir peningaverðlaun þeim nemanda sem útskrifast með hæstu einkunn í meistaranámi. Hollvinafélag lagadeildar, mun einnig veita verðlaun fyrir hæstu einkunn í BA-námi.

Sjá einnig heimasíðu lagadeildar HÍ

Lagadeild

Styrktaraðilar

Logos Egils Gull Sommersby LEX Creditinfo Atlantsolía Nova Úlfljótur