Námsnefnd
Hlutverk námsnefndar er að ræða ýmis mál sem varða kennslu og nám við deildina. Þá fjallar námsnefnd um hvaða námskeið, sem tekin eru m.a. í skiptinámi eða í öðrum deildum háskólans, eru metin inn í meistaranám laganema. Einnig skal námnefnd meta umsóknir um námsvist. Námsnefnd er skipuð deildarforseta, einum fulltrúa kennara og tveimur fulltrúum nemenda. Þá situr fundi nefndarinnar alþjóðafulltrúi af skrifstofu lagadeildar.
Fulltrúi nemenda í námsnefnd, ásamt varaformanni, er Gísli Davíð Karlsson. Til vara er Rútur Örn Birgisson.
Þurfi nemandi að koma erindi fyrir námsnefnd skal hann hafa samband við Emblu Þórsdóttur á skrifstofu lagadeildar.
Nánari upplýsingar veitir varaformaður Orators, Kristel Finnbogadóttir (krf6@hi.is).
Lagadeild býður upp á námsvist nemenda í framhaldsnámi við fyrirtæki eða stofnanir, sem hlotið hafa viðurkenningu lagadeildar. Námsvist á að þjálfa nemanda í að vinna lögfræðitengd störf undir eftirliti lögfræðings og skal vera fullt starf, launað eða ólaunað.
Reglur lagadeildar varðandi námsvist má finna hér:
http://www.hi.is/is/felagsvisindasvid_deildir/lagadeild/samstarf/innlent_samstarf
Nemendur geta sótt um að námskeið, sem m.a. eru tekin í skiptinámi eða öðrum deildum háskólans, séu metin inn í meistaranám laganema.
Reglur lagadeildar varðandi skiptinám og nám við aðrar deildir háskólans má finna hér: http://www.hi.is/is/felagsvisindasvid_deildir/lagadeild/nam/skiptinam_og_nam_vid_adrar_haskoladeildir



