Deildarfundir

Deildarfundir lagadeildar eru haldnir síðasta þriðjudag í mánuði frá september til maí ár hvert. Þar eiga sæti prófessorar, dósentar, lektorar og aðjúnktar, svo og forstöðumaður Lagastofnunar. Enn fremur eiga þar sæti fulltrúar stúdenta í deildinni, kosnir af nemendum deildarinnar, samkvæmt lögum Orators. Á deildarfundum eru tekin fyrir mál er varða stefnumótun deildarinnar, ný námskeið, ákvarðanir um ráðningu nýrra kennara, breytingar á reglum deildar og önnur þau mál er varða deildina á einn eða annan hátt. Fulltrúar stúdenta fara með málefni laganema á deildarfundum og gæta hagsmuna þeirra þar. Nánar er fjallað um deildarfundi í reglum fyrir Háskóla Íslands, nr. 569/2009 (http://www.hi.is/skolinn/reglur_fyrir_haskola_islands).

Fulltrúar á deildarfundum, ásamt varaformanni, eru Vera Dögg Guðmundsdóttir, Védís Eva Guðmundsdóttir og Vilhjálmur Þór Svansson. Til vara eru Sindri Rafn Kamban og Þórhildur Katrín Stefánsdóttir.

Nánari upplýsingar veitir varaformaður Orators, Kristel Finnbogadóttir (krf6@hi.is).

 

 

Hagsmunamál

Styrktaraðilar

Logos Egils Gull Sommersby LEX Creditinfo Atlantsolía Nova Úlfljótur