Atvinnunefnd
Undir merkjum Orators starfar atvinnunefnd Orators. Um atvinnunefnd og hlutverk hennar er fjallað í 49. gr. laga Orators. Markmið atvinnunefndar Orators eru að efla tengsl nemenda í lagadeild Háskóla Íslands við íslenskt atvinnulíf. Hlutverk nefndarinnar er m.a. að koma á samstarfi milli Orators og fyrirtækja og/eða stofnana um ráðningar laganema við lagadeild Háskóla Íslands í lögfræðitengd störf. Þá skal atvinnunefndin koma tilkynningum um lausar stöður á framfæri við nemendur. Atvinnunefndin kemur ekki að ráðningunum sjálfum að neinu leyti, hvorki með mati á umsóknum, umsækjendum né öðrum hætti. Atvinnunefndinni er þó heimilt, sé þess sérstaklega óskað af viðsemjendum hennar, að safna saman og halda til haga umsóknum. Það skal þó gert í samvinnu við skrifstofu lagadeildar.
Framkvæmdastjórar atvinnunefndar 2011-2012 eru Bjarki Einar Birgisson (beb11@hi.is), Guðmundur Sæmundsson (gus25@hi.is), Gunnar Atli Gunnarsson (gag21@hi.is) og Steinlaug Högnadóttir (sth136@hi.is).
Stjórn Orators og atvinnunefnd Orators koma auglýsingum um lausar stöður fyrir laganema gjarnan á framfæri við nemendur lagadeildar Háskóla Íslands. Auglýsingar um lausar stöður fyrir laganema má senda á framkvæmdastjóra atvinnunefndar eða á netfangið orator@hi.is.
Náms- og starfsráðgjöf Háskóla Íslands (NSHÍ) veitir nemendum Háskólans margs konar stuðning og þjónustu meðan á námi stendur. Nánari upplýsingar má finna hér: http://www.hi.is/skolinn/nams_og_starfsradgjof.



