Fyrsti handhafi kennsluverðlauna Orators

Kristel Finnbogadóttir, 21. febrúar 2012 09:33

Í vetur tók stjórn Orators ákvörðun um að veita skyldi kennsluverðlaun af hálfu félagsins, í fyrsta sinn. Kennsluverðlaunum Orators er ætlað að heiðra þá kennara sem þykja hafa skarað fram úr í kennslu í lagadeild. Það er jafnframt von stjórnar Orators að kennsluverðlaunin verði öðrum hvatning, einkum kennurum en einnig nemendum, til áhrifa á þróun og framfarir í kennslu lagadeildar.

Auglýst var eftir tilnefningum til kennsluverðlauna í janúar og þakkar stjórn Orators þeim nemendum sem sendu inn tilnefningar kærlega fyrir þátttökuna. Tilnefningarnar voru jafn ólíkar og þær voru margar og komu frá nemendum á öllum námsárum. Ákvörðun um hver skyldi hljóta verðlaunin var í höndum formanns Orators, varaformanns og ritstjóra Úlfljóts. Við ákvarðanatöku var litið til rökstuðnings sem fram kom í tilnefningum og þeirra viðmiða, sem þegar höfðu verið sett um verðlaunin.

Á hátíðarmálþingi Orators þann 16. febrúar sl. voru verðlaunin afhent. Sá kennari sem hlaut verðlaunin fyrir skólaárið 2011-2012 er Hafsteinn Þór Hauksson, lektor. Í tilnefningu sagði um Hafstein Þór: „Hann er einstaklega fær í að koma á stað umræðu um efnið og hvetja til gagnrýninnar hugsunar um kenningar og fræðimenn. Hann kveikti áhuga nemenda og jók skilning þeirra á annars erfiðu viðfangsefni, enda kom hann alltaf fram við nemendur sem jafningja.“ Fleiri nemendur hrósuðu Hafsteini Þór í tilnefningum sínum fyrir þann hæfileika að vekja áhuga nemenda á námsefninu og að ná vel til þeirra. Honum var einnig hrósað fyrir nýbreytni í kennsluháttum, m.a. í námskeiðinu Réttarheimspeki, sem kennt er á meistarastigi, auk þess sem nemendur á 1. ári lýstu því hvernig Hafsteinn Þór braut upp hið hefðbundna fyrirlestraform, með góðum árangri.

Við ákvörðun um hver skyldi hljóta fyrstu kennsluverðlaun Orators var ljóst að Hafsteinn Þór uppfyllti allar kröfur sem gera má til framúrskarandi kennara. Stjórn Orators óskar Hafsteini Þór innilega til hamingju með verðlaunin. 

Tilbaka

Styrktaraðilar

Logos Egils Gull Sommersby LEX Creditinfo Atlantsolía Nova Úlfljótur