HÁTÍÐARMÁLÞING ORATORS - FRAMTÍÐ EFNAHAGSBROTARANNSÓKNA
Harpa Rún Glad, 15. febrúar 2012 13:15
Framtíð efnahagsbrotarannsókna er viðfangsefni hátíðarmálþings Orators, félags laganema við Háskóla Íslands, sem er haldið í samstarfi við innanríkisráðuneytið.
Framsögumenn eru
Ólafur Þór Hauksson sérstakur saksóknari,
Jóhannes Karl Sveinsson hrl. hjá Landslögum og
Kristín Edwald hrl. hjá Lex lögmannsstofu
Innanríkisráðherra hefur sett á laggirnar nefnd sem falið hefur verið að móta framtíðarstefnu efnahagsbrotarannsókna. Stefnt er að því að koma á fót einni sterkri stofnun sem færi fyrir öllum rannsóknum efnahagsbrota á víðum grundvelli í stað margra stofnana eins og kerfið er í dag. Núverandi kerfi hefur verið verið mikið í þjóðfélagsumræðunni og munu ræðumenn málþingsins leitast við að kasta frekari ljósi á rannsóknir efnahagsbrota og framtíð þeirra.
Ólafur Þór Hauksson mun fjalla um feril rannsókna og fara yfir þróun og stöðu embættis sérstaks saksóknara í nútíð og framtíð.
Jóhannes Karl Sveinsson mun velta fram hugmyndum og spurningum varðandi rannsókn og saksókn sem undanfari meðferðar efnahagsbrotamála fyrir dómi.
Kristín Edwald mun tala um stöðu og réttindi sakbornings við rannsókn efnahagsbrota.
Fundastjóri verður Harpa Rún Glad, funda- og menningarmálastjóri Orators.
Málþingið er opið öllum og hefst kl. 12:00 í stofu 101 í Lögbergi, húsi lagadeildar Háskóla Íslands.
Kennsluverðlaun Orators verða veitt í fyrsta skiptið í byrjun málþingsins.
Að málþingi loknu verður boðið upp á léttar veitingar.




