Hádegisfyrirlestur um atvinnuleit

Kristel Finnbogadóttir, 06. febrúar 2012 20:23

Kæru laganemar.

Miðvikudaginn 8. febrúar ætlar Gunnar Haugen framkvæmdastjóri hjá Capacent að halda fyrirlestur um atvinnuleit í hádegishléinu kl. 12, í sal 101 í Lögbergi.

Rætt verður um stöðuna á vinnumarkaðinum og hvernig best er að koma sér á framfæri. M.a. verður farið yfir gerð ferilskráa og atvinnuviðtalið.

Atvinnunefnd Orators hvetur laganema til að mæta. Heitt verður á könnunni og kleinur með kaffinu.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Tilbaka

Styrktaraðilar

Logos Egils Gull Sommersby LEX Creditinfo Atlantsolía Nova Úlfljótur