Orator-mágus dagurinn

Sigurður Gústavsson, 05. febrúar 2012 17:51

Kæru Laganemar Lýðveldisins Íslands

Undur og stórmerki á þessum síðustu og verstu tímum. Á föstudaginn síðastliðinn lauk 11 ára sigurgöngu Orators félags laganema við Háskóla Íslands gegn mágusi félagi viðskiptafræðinema við sömu stofnun. Orator vann fasta liði líkt og venjulega og sigraði á sannfærandi hátt skák og spurningakeppnina á fimmtudaginn. Þrátt fyrir vasklega framkomu fulltrúa okkar á ...íþróttamótinu á föstudaginn beið Orator ósigur í flestum íþróttagreinum að undanskildum körfubolta og reipitogi karla. Úrslit mótsins réðust svo okkur í óhag með drykkjukeppni um kvöldið. Ræðulið Orators sigraði síðustu Orrustu kvöldsins með yfirburðum og Sindri M Stephensen ritstjóri Úlfljóts var kjörinn ræðumaður kvöldsins en úrslit keppninnar höfðu þá þegar verið ráðin. Stjórn Orators vill þakka snúlluspöðunum í mágus fyrir drengilega keppni og öllum þeim sem tóku þátt í deginum. Það er ekki óþekkt að hundur finni bein öðru hvoru, en að ári liðnu mun Grágæsin rísa úr ösku sinni og endurheimta bikarinn til sinna réttu eiganda.

Lengi lifi Orator

Tilbaka

Styrktaraðilar

Logos Egils Gull Sommersby LEX Creditinfo Atlantsolía Nova Úlfljótur