HM bókhald ehf./Lögmannsstofa MSH leitar að laganema í hlutastarf
Kristel Finnbogadóttir, 05. febrúar 2012 16:27
HM bókhald ehf./Lögmannsstofa MSH leitar að laganema í hlutastarf.
Um er að ræða starf við úrlausn lögfræðilegra álitamála fyrir fyrirtæki og einstaklinga, aðstoð við skiptastjórn, samningagerð, innheimtu og margt fleira. Starfið reynir á þekkingu viðkomandi og færni á mörgum réttarsviðum, m.a. ýmsar greinar fjármunaréttar, samningsrétt, stjórnsýslurétt o.fl. Starfið er því bæði fjölbreytt og krefjandi. Vinnutími er sveigjanlegur.
Umsækjandi þarf að hafa lokið eða er að ljúka, grunnnámi. Þá er nauðsynlegt að umsækjendur hafi sýnt góðan námsárangur og hafi tamið sér sjálfstæð og öguð vinnubrögð. Eigi gott með samskipti og hafi góða ritfærni. Grunnþekking á bókhaldi og fjármálum er kostur. Vera vandvirkur, reglusamur og reyklaus.
Áhugasamir sendi ferilskrá og yfirlit yfir einkunnir til Margrétar Hafsteins margret@hmbokhald.is. Fyllsta trúnaðar verður gætt við meðferð allra umsókna.



