Framadagar 2012
Kristel Finnbogadóttir, 25. janúar 2012 12:30
Framadagar Háskólanna 2012 verða haldnir þann 1. febrúar í Háskólanum í Reykjavík.
Framadagar eru fyrir alla háskólanema úr öllum deildum. Framadagar Háskólanna er árlegur viðburður þar sem 35 helstu fyrirtæki landsins kynna starfsemi sína fyrir háskólanemendum.
Markmið Framadaga er að háskólanemar geti kynnt sér fyrirtæki og aukið þar með líkur á sumarvinnu, framtíðarstarfi eða verkefnavinnu fyrir fyrirtæki. Sömuleiðis að fyrirtæki kynnist mögulegum starfsmönnum hvort sem er sumarstarfsmönnum eða framtíðarstarfsmönnum.
Stuttar fyrirtækjakynningar verða, örfyrirlestrar verða haldnir yfir daginn, kennarar úr HÍ og HR munu etja kappi í spurningakeppni og lukkuhjól með glæsilegum vinningum verður á staðnum.
Strætó á vegum Framadaga Háskólanna mun ganga á milli HÍ og HR frá 10:45-16:15 og verður í boði fyrir alla.
Hér má finna Facebook-síðu Framadaga.



