Lögfræðistörf hjá Arion banka

Kristel Finnbogadóttir, 23. janúar 2012 16:32

Arion banki hf. óskar eftir að ráða laganema til starfa. Um er að ræða hlutastarf í vetur ásamt fullu starfi í sumar.

Starf laganema mun felast í því að aðstoða starfsmenn lögfræðisviðs. Vinnu­tími er sveigjanlegur. Æskilegt er að umsækjendur séu á 3. eða 4. ári laganámsins. Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi sýnt góðan námsárangur og hafi tamið sér sjálfstæð og öguð vinnubrögð.

Lögfræðisvið bankans skiptist í annars vegar lögfræðiráðgjöf og hins vegar fullnustu og málflutning. Starfsmenn lögfræðiráðgjafar bankans fást við ýmis verkefni, s.s. lögfræðilega ráðgjöf við yfirstjórn og önnur svið bankans, samningagerð, og önnur lögfræðileg verkefni. Meðal verkefna starfsmanna fullnustu og málflutnings er lögfræðileg innheimta krafna, fullnustugerðir, skjalagerð, umsýsla fullnustueigna og málflutningur.

Meðal helstu réttarsviða sem á reynir eru félagaréttur, kröfuréttur, samningaréttur, verðbréfamarkaðsréttur og réttarfar.

Áhugasamir sendi ferilskrá og yfirlit yfir einkunnir til Lilju Guðrúnar Róbertsdóttur í starfsmannasþjónustu Arion banka, lilja.robertsdottir@arionbanki.is. Umsóknarfrestur er til og með 1. febrúar 2012.

Tilbaka

Styrktaraðilar

Logos Egils Gull Sommersby LEX Creditinfo Atlantsolía Nova Úlfljótur