Kennsluverðlaun Orators

Sindri M Stephensen, 16. janúar 2012 19:04

Kæru laganemar,

Skólaárið 2011-2012 hefur stjórn Orators ákveðið að veita kennsluverðlaun
Orators í fyrsta sinn. Kennsluverðlaunum Orators er ætlað að heiðra þá
kennara sem þykja hafa skarað fram úr í kennslu í lagadeild. Þá er það von
stjórnar að kennsluverðlaunin verði öðrum hvatning, bæði kennurum og
nemendum, til áhrifa á þróun og framfarir í kennslu lagadeildar.

Kennsluverðlaun Orators skulu veitt kennara sem:
- Vekur áhuga nemenda á námsefninu.
- Hvetur nemenda til gagnrýninnar hugsunar um námsefnið.
- Hvetur til umræðna við nemendur um námsefnið.
- Tengir námsefnið hagnýtum viðfangsefnum.
- Sýnir nýbreytni í kennsluaðferðum- og kennsluháttum.
- Sýnir nemendum virðingu og þolinmæði í samskiptum.

Um val á kennara sem veita skal kennsluverðlaun gilda eftirfarandi reglur:
- Stjórn Orators auglýsir eftir tilnefningum til kennsluverðlauna í janúar.
- Allir nemendur lagadeildar geta tilnefnt kennara til verðlaunanna, óháð
því hvenær nemandi sat námskeið hjá viðkomandi kennara.
- Hæfir til tilnefningar eru prófessorar, dósentar, lektorar og aðjúnktar
við lagadeild sem og stundakennarar.
- Í tilnefningu skal koma fram nafn kennara og námskeið ásamt stuttum
rökstuðningi fyrir tilnefningunni.
- Þegar tilnefningum hefur verið safnað saman skulu formaður stjórnar
Orators, varaformaður og ritstjóri Úlfljóts fara yfir tilnefningarnar með
hliðsjón af þeim viðmiðum sem sett hafa verið um kennsluverðlaun Orators.
Leita má ráðgefandi álits hjá hagsmunafulltrúum hvers árs þegar komist er
að niðurstöðu um það hverjum skuli veita verðlaunin.
-Meðlimir í stjórn Orators mega ekki tilnefna kennara til kennsluverðlauna.
- Kennsluverðlaun verða afhent á hátíðarmálþingi Orators þann 16. febrúar.


Tilnefningar berist á orator@hi.is fyrir 30. janúar næstkomandi.


Stjórn Orators

Tilbaka

Styrktaraðilar

Logos Egils Gull Sommersby LEX Creditinfo Atlantsolía Nova Úlfljótur