Fyrsti handhafi kennsluverðlauna Orators

Kristel Finnbogadóttir, 21. febrúar 2012

Í vetur tók stjórn Orators ákvörðun um að veita skyldi kennsluverðlaun af hálfu félagsins, í fyrsta sinn. Kennsluverðlaunum Orators er ætlað að heiðra þá kennara sem þykja hafa skarað fram úr í kennslu í lagadeild. Það er jafnframt von stjórnar Orators að kennsluverðlaunin verði öðrum hvatning, einkum kennurum en einnig nemendum, til áhrifa á þróun og framfarir í kennslu lagadeildar.

Meira


HÁTÍÐARMÁLÞING ORATORS - FRAMTÍÐ EFNAHAGSBROTARANNSÓKNA

Harpa Rún Glad, 15. febrúar 2012

Framtíð efnahagsbrotarannsókna er viðfangsefni hátíðarmálþings Orators, félags laganema við Háskóla Íslands, sem er haldið í samstarfi við innanríkisráðuneytið. Framsögumenn eru Ólafur Þór Hauksson sérstakur saksóknari, Jóhannes Karl Sveinsson hrl. hjá Landslögum og Kristín Edwald hrl. hjá Lex lögmannsstofu

Meira

Hádegisfyrirlestur um atvinnuleit

Kristel Finnbogadóttir, 06. febrúar 2012

Kæru laganemar. Miðvikudaginn 8. febrúar ætlar Gunnar Haugen framkvæmdastjóri hjá Capacent að halda fyrirlestur um atvinnuleit í hádegishléinu kl. 12, í sal 101 í Lögbergi.

Meira


Orator-mágus dagurinn

Sigurður Gústavsson, 05. febrúar 2012

Kæru Laganemar Lýðveldisins Íslands Undur og stórmerki á þessum síðustu og verstu tímum. Á föstudaginn síðastliðinn lauk 11 ára sigurgöngu Orators félags laganema við Háskóla Íslands gegn mágusi félagi viðskiptafræðinema við sömu stofnun. Orator vann fasta liði líkt og venjulega og sigraði á sannfærandi hátt skák og spurningakeppnina á fimmtudaginn. Þrátt fyrir vasklega framkomu fulltrúa okkar á ...íþróttamótinu á föstudaginn beið Orator ósigur í flestum íþróttagreinum að undanskildum körfubolta og reipitogi karla. Úrslit mótsins réðust svo okkur í óhag með drykkjukeppni um kvöldið. Ræðulið Orators sigraði síðustu Orrustu kvöldsins með yfirburðum og Sindri M Stephensen ritstjóri Úlfljóts var kjörinn ræðumaður kvöldsins en úrslit keppninnar höfðu þá þegar verið ráðin. Stjórn Orators vill þakka snúlluspöðunum í mágus fyrir drengilega keppni og öllum þeim sem tóku þátt í deginum. Það er ekki óþekkt að hundur finni bein öðru hvoru, en að ári liðnu mun Grágæsin rísa úr ösku sinni og endurheimta bikarinn til sinna réttu eiganda. Lengi lifi Orator

Meira

HM bókhald ehf./Lögmannsstofa MSH leitar að laganema í hlutastarf

Kristel Finnbogadóttir, 05. febrúar 2012

Um er að ræða starf við úrlausn lögfræðilegra álitamála fyrir fyrirtæki og einstaklinga, aðstoð við skiptastjórn, samningagerð, innheimtu og margt fleira. Starfið reynir á þekkingu viðkomandi og færni á mörgum réttarsviðum, m.a. ýmsar greinar fjármunaréttar, samningsrétt, stjórnsýslurétt o.fl. Starfið er því bæði fjölbreytt og krefjandi. Vinnutími er sveigjanlegur.

Meira

Fleiri fréttir

Styrktaraðilar

Logos Egils Gull Sommersby LEX Creditinfo Atlantsolía Nova Úlfljótur