Framadagar 2012

Kristel Finnbogadóttir, 25. janúar 2012

Framadagar Háskólanna 2012 verða haldnir þann 1. febrúar í Háskólanum í Reykjavík. Framadagar eru fyrir alla háskólanema úr öllum deildum. Framadagar Háskólanna er árlegur viðburður þar sem 35 helstu fyrirtæki landsins kynna starfsemi sína fyrir háskólanemendum.  Markmið Framadaga er að háskólanemar geti kynnt s&eacut ...

Meira


Málþing á vegum Orator - Nafn- & myndbirting í kynferðisbrotamálum

Harpa Rún Glad, 24. janúar 2012

Málþingið verður haldið fimmtudaginn 26. janúar kl.12:00 - 13:10 í stofu 101 Lögbergi. Framsögumenn verða Jón Þór Ólason hdl. og lektor við Háskóla Íslands, Friðrik Þór Guðmundsson blaðamaður sem situr í siðanefnd Blaðamannafélags Íslands og Ása Ólafsdóttir hrl. og lektor við Háskóla Íslands, einnig hefur hún mikla reynslu sem réttargæslumaður. Farið verður yfir hvaða reglur gilda um nafn og myndbirtingar í kynferðisbrotamálum og hvernig framkvæmdin hefur verið. Þar sem miklir en ólíkir hagsmunir takast á er þessi umræða þörf. Litið verður til sjónarmiða brotaþola svo og sakbornings ásamt því að skoðað verður sjónarmið fréttamiðla. Málefnið er í alla staði áhugavert og hvetjum við sem flesta til að mæta! Málþingið er haldið í samstarfi við LEX lögmannstofu.

Meira


  • Málstofa Mannréttindastofnunar & Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands
    - 24. janúar 2012
    Viðurkenning Íslands á Palestínu - Hvenær getur þjóð stofnað ríki?

  • Lögfræðistörf hjá Arion banka
    - 23. janúar 2012

    Arion banki hf. óskar eftir að ráða laganema til starfa. Um er að ræða hlutastarf í vetur ásamt fullu starfi í sumar.

    Starf laganema mun felast í því að aðstoða starfsmenn lögfræðisviðs. Vinnu­tími er sveigjanlegur. Æskilegt er að umsækjendur séu á 3. eða 4. ári laganámsins. Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi sýnt góðan námsárangur og hafi tamið sér sjálfstæð og öguð vinnubrögð.

    Lögfræðisvið bankans skiptist í annars vegar lögfræðiráðgjöf og hins vegar fullnustu og málflutning. Starfsmenn lögfræðiráðgjafar bankans fást við ýmis verkefni, s.s. lögfræðilega ráðgjöf við yfirstjórn og önnur svið bankans, samningagerð, og önnur lögfræðileg verkefni. Meðal verkefna starfsmanna fullnustu og málflutnings er lögfræðileg innheimta krafna, fullnustugerðir, skjalagerð, umsýsla fullnustueigna og málflutningur.

    Meðal helstu réttarsviða sem á reynir eru félagaréttur, kröfuréttur, samningaréttur, verðbréfamarkaðsréttur og réttarfar.

    Áhugasamir sendi ferilskrá og yfirlit yfir einkunnir til Lilju Guðrúnar Róbertsdóttur í starfsmannasþjónustu Arion banka, lilja.robertsdottir@arionbanki.is. Umsóknarfrestur er til og með 1. febrúar 2012.

  • Kennsluverðlaun Orators
    - 16. janúar 2012

    Kæru laganemar,

    Skólaárið 2011-2012 hefur stjórn Orators ákveðið að veita kennsluverðlaun
    Orators í fyrsta sinn. Kennsluverðlaunum Orators er ætlað að heiðra þá
    kennara sem þykja hafa skarað fram úr í kennslu í lagadeild. Þá er það von
    stjórnar að kennsluverðlaunin verði öðrum hvatning, bæði kennurum og
    nemendum, til áhrifa á þróun og framfarir í kennslu lagadeildar.

    Kennsluverðlaun Orators skulu veitt kennara sem:
    - Vekur áhuga nemenda á námsefninu.
    - Hvetur nemenda til gagnrýninnar hugsunar um námsefnið.
    - Hvetur til umræðna við nemendur um námsefnið.
    - Tengir námsefnið hagnýtum viðfangsefnum.
    - Sýnir nýbreytni í kennsluaðferðum- og kennsluháttum.
    - Sýnir nemendum virðingu og þolinmæði í samskiptum.

    Um val á kennara sem veita skal kennsluverðlaun gilda eftirfarandi reglur:
    - Stjórn Orators auglýsir eftir tilnefningum til kennsluverðlauna í janúar.
    - Allir nemendur lagadeildar geta tilnefnt kennara til verðlaunanna, óháð
    því hvenær nemandi sat námskeið hjá viðkomandi kennara.
    - Hæfir til tilnefningar eru prófessorar, dósentar, lektorar og aðjúnktar
    við lagadeild sem og stundakennarar.
    - Í tilnefningu skal koma fram nafn kennara og námskeið ásamt stuttum
    rökstuðningi fyrir tilnefningunni.
    - Þegar tilnefningum hefur verið safnað saman skulu formaður stjórnar
    Orators, varaformaður og ritstjóri Úlfljóts fara yfir tilnefningarnar með
    hliðsjón af þeim viðmiðum sem sett hafa verið um kennsluverðlaun Orators.
    Leita má ráðgefandi álits hjá hagsmunafulltrúum hvers árs þegar komist er
    að niðurstöðu um það hverjum skuli veita verðlaunin.
    -Meðlimir í stjórn Orators mega ekki tilnefna kennara til kennsluverðlauna.
    - Kennsluverðlaun verða afhent á hátíðarmálþingi Orators þann 16. febrúar.


    Tilnefningar berist á orator@hi.is fyrir 30. janúar næstkomandi.


    Stjórn Orators

  • Kokteilar á föstudag og partý með Lögréttu !
    - 10. janúar 2012

    Kæru laganemar. Við byrjum árið 2012 með trompi því á föstudaginn eru fyrstu kokteilar vorannar.

    1.-3. árið fer í Arion banka og 4.-5.ár fer í Stéttarfélag lögfræðinga.

    Eftir kokteilana munum við svo fara með rútum á Buddha bar þar sem kokteilar hússins verða á sérstöku verði. 3 fyrir 1 af kokteilum hússins, bjór og skot á 1000 krónur. Skemmtum okkur fram á nótt með félögum okkar í Lögréttu !

    Skráning hefst kl 12:00 miðvikudaginn 10.janúar á www.orator.is

     

    Hlökkum til að sjá ykkur !

    Kv.Stjórnin

  • Hlutastarf fyrir laganema
    - 13. desember 2011

    Kæru laganemar,

     

    Innheimtustofnun sveitarfélaga leitar að laganema í hlutastarf við að sinna verkefnum á sviði Norðurlandainnheimtu. 

    Umsækjendur skulu hafa lokið 2. ári í laganámi og góð kunnátta í einu Norðurlandatungumáli er æskileg.

    Vinnutími er áætlaður 1-2 daga í viku og viðkomandi þyrfti að geta hafið störf sem fyrst.

     

    Umsóknir skulu sendast á netfangið gudmundur@medlag.is.

     

     

Fréttasafn

Atburðir

« Dagatal »
mán þri mið fim fös lau sun
Allir atburðir

Aðalstyrktaraðili Orators

Logos

Styrktaraðilar

Egils Gull Sommersby LEX Creditinfo Atlantsolía Nova Úlfljótur