Netfang: Lykilorð: Fá sent lykilorð

Aðstoðarkennarar haustið 2009

31 Aug 2009

Óskað er eftir umsóknum laganema í meistaranámi til að gegna störfum aðstoðarkennara samkvæmt reglum deildarinnar í eftirgreindum námskeiðum á haustmisseri 2009: Evrópuréttur Almenn Lögfræði Samningaréttur Skaðabótaréttur Stjórnsýsluréttur I Kröfuréttur I Refsiréttur I Réttarfar I Nemendur verða að tilgreina hvaða námskeið þeir sækja um sem aðalnámskeið og varanámskeið og merkja sérstaklega þannig: Námskeið nr. 1. (og heiti námskeiðs), námskeið nr. 2 (og heiti námskeiðs) o.s.frv. umsóknir sem ekki eru þannig merktar verða ekki teknar til greina. Við val á umsækjendum skal umsjónarkennari hvers námskeiðs velja þann sem hann telur hæfastan til verksins með tilliti til frammistöðu í laganámi (að jafnaði er gerð sú krafa að nemendur hafi 1. einkunn í meðaleinkunn og/eða í því námskeiði sem þeir sækja um í, umsjónarkennari getur þó vikið frá þessu), eða eftir atvikum í öðru námi, áhuga á námsgreininni og getu til að leiða rökræður í umræðu- og verkefnatímum og að fara yfir próf. Jafnframt er heimilt að líta til annarra atriða ef líklegt þykir að þau nýtist til starfsins. Nemendir eru hvattir til að skoða reglur deildarinnar um aðstoðarkennslu og minnisblað um ráðningu aðstoðarkennara á heimasíðu deildarinnar, http://www.hi.is/files/skjol/felagsvisindasvid/deildir/laga/Reglur_lagadeildar_um_adstod_meistaranema.pdf Umsóknir skulu sendar í tvíriti, ásamt staðfestu endurriti af námsferli þar sem fram koma aðaleinkunn og einkunnir í einstökum námskeiðum, uppl. um fyrri störf og meðmæli ef við á. Umsóknum skal skilað til Sunnu Kristínar Símonardóttur á skrifstofu lagadeildar í Gimli-121, merktar: Aðstoðarkennsla haustið 2009 Námskeið nr. 1: (heiti námskeiðs) Námskeið nr. 2: (heiti námskeiðs) Námskeið nr. 3: (heiti námskeips) Umsóknarfrestur er til kl. 15:30, miðvikudaginn 10. september nk. Nemendur af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um. Lagadeild Háskóla Íslands

Meira

Nýnemar!

28 Aug 2009

Munið kynningarfundinn í dag kl. 14:00 í Háskólabíói, Grillveisla í boði Orator, kaka og kókómjólk í boði Úlfljóts í Lögbergi að fundinum loknum, einnig munu eldri nemendur vera á staðnum og kynna háskólasvæðið. Sjáumst kát! Stjórn Orator.

Meira

Jessup málflutningskeppnin

27 Aug 2009

Þátttaka laganema í Jessup-málflutningskeppninni á sviði þjóðaréttar Í lok mars 2010 fer fram í Washington DC alþjóðleg málflutningskeppni laganema á sviði þjóðaréttar kennd við Philip C. Jessup. Eitt lið frá lagadeild háskóla í hverju landi öðlast þátttökurétt í lokakeppni, en Jessup er elsta og stærsta málflutningskeppni sem haldin er á heimsvísu. Fyrirkomulagið er það að þann 14. september 2009 birtir ILSA (Alþjóðasamtök laganema) málsatvikalýsingu og þau lið sem taka þátt vinna í framhaldi að greinargerðum sem skila þarf til ILSA fyrir 12. janúar 2010. Taki lið frá fleiri en einum háskóla hérlendis þátt fer einnig fram landskeppni þar sem keppt er í málflutningi. Lagadeild auglýsir því nú eftir áhugasömum laganemum til að taka þátt í Jessup 2010, en til að mynda lið þarf 4-5 liðsmenn. Þátttakan á vorönn 2009 og haustönn 2010 er metin til 6 ECTS sem jafngildir einu valfagi á meistarastigi. Skilyrði fyrir þátttöku er að vera skráður til náms á meistarastigi við lagadeild, en æskilegt er að hafa tekið eða vera skráður í námskeið í þjóðarétti (Basic Course in Public International Law), en nú á haustönn 2009 er áformað að tengja verkefnavinnu í því námskeiði við viðfangsefni Jessup keppninnar. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt eða vilja kynna sér málið eru beðnir um að hafa samband fyrir 1. september nk. við Pétur Dam Leifsson, dósent ( peturl@hi.is ). Upplýsingar um Jessup málflutningskeppnina er að finna á - http://www.ilsa.org/jessup/index.php - og á UGLU Háskóla Íslands en verkefnin eru þar auðkennd sem LÖG 242F (haust) og LÖG 133F (vor).

Meira

Skólastoðin - frábært framtak

26 Aug 2009

Vilt þú láta gott af þér leiða og styrkja barn til skólagöngu? Þekkir þú einhvern sem á í fjárhagserfiðleikum? Finnst þér útgjöld fyrir skólagöngu svimandi há? Söfnun ritfanga fyrir skólabörn í Kringlunni fimmtudag og föstudag. Einnig tekið á móti frjálsum fjárframlögum inn á reikning nr. 512-14-400999 kt. 070183-3909 Undanfarið hefur borið á því að foreldrar eigi í erfiðleikum með að kaupa skólabækur og ritföng fyrir börn sín enda mikill kostnaður sem fylgir skólagöngu. Okkur þykir þetta ótækt enda mikilvægt að hlúa að velferð barnanna og tryggja að þau líði hvorki skort né verði fyrir mismunun sökum fjárhagserfiðleika foreldra sinna. Okkur er annt um hag barnanna og viljum láta gott af okkur leiða. Við köllum okkur Skólastoðina en hún hefur það að markmiði að styrkja grunnskólabörn í Reykjavík sem á þurfa að halda vegna fjárhagserfiðleika foreldra. Fyrsta verkefni Skólastoðarinnar, í samstarfi við Fjölskylduhjálp Íslands verður að hefja ritfanga- og bókasöfnun. Markmiðið er að útbúa ritfangapakka með helstu grunnverkfærum hvers nemenda. Það eru m.a. pennar, blýantar, trélitir, stílabækur, gráðubogi, skæri, dósayddari, reglustika, plastvasar o.fl. o.fl. Kæri vinur, Skólastoðin leitar eftir hjálp frá þér. Þú átt kannski einhver ónotuð og vel með farin ritföng í fórum þínum sem þú gætir ánafnað í söfnunina. Kannski ertu jafnvel til í að kaupa eitthvað af þessum hlutum og gefa til Skólastoðarinnar. Nú er mikilvægt að allir leggi hendur á plóg og kíki í skúffurnar sínar og athugi hvort þar liggi ekki einhverjir hlutir sem gagnast gætu skólabarni. Við erum að tala um ónotaðar stílabækur, ritföng, möppur og allt sem hugsanlega er unnt að nota á nýjan leik. Viljirðu taka þátt í átaki Skólastoðarinnar með því að gefa skólavarning, nýjan sem notaðan, geturðu komið með það til okkar og við munum sjá um að útbúa ritfangapakkana og dreifa þeim. Við verðum í Kringlunni fimmtudaginn 26. ágúst milli kl. 16 og 21 og föstudaginn 27. ágúst milli kl. 13 og 19 (fyrir framan verslunina Kúltúr á annarri hæð). Ritfangapökkum verður úthlutað í samstarfi við Fjölskylduhjálp Íslands eftir helgina 28.-30. september á nánar tilgreindum stað (auglýst betur síðar). Hafir þú ekki tök á að gefa gömul ritföng og bækur en vilt samt sem áður styrkja íslensk skólabörn tekur Skólastoðin einnig við fjárstyrkjum. Þannig er hægt að leggja ótilgreinda fjárhæð inn á bankareikning og verður fjármunum síðan varið til kaupa á „verkfærum“ sem minnst safnast af. Reikningsnúmer Skólastoðarinnar er 512-14-400999 og kt. er 070183-3909. Mundu að margt smátt gerir eitt stórt. Til viðbótar við framangreint hefur Skólastoðin einnig hug á að taka við notuðum námsbókum fyrir framhaldsskólanema. Foreldrar margra þeirra hafa verið í vandræðum með skólabókakaup handa þeim. Ef þú átt gamlar námsbækur úr framhaldsskóla, t.d. Njálu, Íslandsklukkuna eða Er hieβ Jan þá eru slíkar bækur mjög vel þegnar. Skólastoðin, í samstarfi við Fjölskylduhjálp Íslands mun sjá um að koma bókunum í umferð þar sem þeirra er þörf. Kíktu því ofan í gamla kassa og geymsluna; hugsanlega eru þar einhverjar af gömlu bókunum sem nýtast einhverjum í dag. Hjálpum skólabörnum að hefja grunn- og framhaldsskólanám. Sýnum samstöðu í verki á erfiðum tímum. Tryggjum hag barnanna í skólanum enda munu þau byggja upp nýtt Ísland. Framtíðin er í þeirra höndum! Netfang Skólastoðarinnar er: skolastodin@gmail.com Að framtakinu standa: Alma Tryggvadóttir gsm: 690 7771, Hildur Sunna Pálmadóttir gsm: 691 4055, Íris Lind Sæmundsdóttir gsm: 864 9983 og Margrét Á. Sigurðardóttir gsm: 868 1082

Meira

131 32 33 34

Vinsælustu síðurnar